Lögreglan á Suðurlandi sendi frá sér eftirfarandi tilkynningu í gærkvöldi: „Ennþá er unnið að slökkvistarfi í einbýlishúsi við Kirkjuveg á Selfossi en tilkynning um eld í húsinu barst lögreglu skömmu fyrir kl. 16:00 í dag.   Húsið er gamallt, hæð og ris og einangrað með frauðplasti, a.m.k. að hluta.   Talið er að karlmaður og kona sem voru á efri hæðinni þegar eldurinn kom upp hafi látist í brunanum.  Ekki er unnt að staðreyna það með óyggjandi hætti fyrr en slökkvistarfi er lokið, húsið kólnað  og vettvangur hefur verið tryggður vegna hrunhættu og mun vinna við það að líkindum hefjast í fyrramálið.

Aðstandendum þeirra sem saknað er hefur verið kynnt staða málsins.

Tveir einstaklingar sem handteknir voru á vettvangi í þágu rannsóknar málsins eru í haldi lögreglu.  Ekki hefur verið unnt að taka skýrslu af þeim vegna ástands þeirra.   Eldsupptök eru ókunn.“