10 C
Selfoss

Stjórnarferð Rarik um Suðurland

Vinsælast

Stjórn Rarik fór í sína árlegu ferð um dreifiveitusvæði Rarik, ræddi við sveitarstjórnir og heimsótti starfsstöðvar fyrirtækisins. Þetta er mikilvægur þáttur í því að kynna starfsemi Rarik gagnvart sveitarfélögunum, heyra hvað á þeim brennur, svara spurningum og koma á góðum skoðanaskiptum um stöðu dreifikerfisins. Að þessu sinni var Suðurland heimsótt dagana 30. og 31. ágúst sl.

Axel Sæland tók á móti stjórn Rarik í heimsókn þeirra í garðyrkjustöðina Espiflöt þar sem stunduð er umfangsmikil blómaræktun. Mynd: Rarik.

Fyrri daginn var starfsstöð Rarik á Selfossi heimsótt. Í framhaldinu var fundað á Flúðum með fulltrúum sveitarstjórna Bláskógarbyggðar, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Þá var farið í kynningar- og skoðunarferð um tómataræktina í Friðheimum og garðyrkjustöðina Espiflöt þar sem stunduð er umfangsmikil blómaræktun. Sama dag var fundað með fulltrúum sveitarstjórna Ásahrepps, Rangárþings eystra og Rangárþings ytra á Hellu og síðan var starfsstöð Rarik á Hvolsvelli heimsótt.

Seinni daginn, að loknum stjórnarfundi á Kirkjubæjarklaustri þar sem m.a. var afgreiddur árshlutareikningur Rarik, var fundað í Vík með fulltrúum sveitarstjórnarmanna Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Loks var haldið á Selfoss og fundað með sveitarstjórnarmönnum Árborgar, Flóahrepps, Hveragerðisbæjar og Ölfuss.

Nýjar fréttir