8.4 C
Selfoss

Fjölskyldusýning hjá Leikfélagi Selfoss á afmælisárinu

Vinsælast

Leikfélag Selfoss er enn í 60 ára afmælisgírnum og því í óða önn að setja upp metnađarfulla barna- og fjölskyldusýningu sem stefnt er að frumsýna þann 12. október næstkomandi.

Á síðustu vikum hefur mikið gengið á enda andi fantasíunnar svifið yfir leikhúsinu og leikhópurinn dvalið í heimi ljóða og ævintýra.

Verkið er samsköpun leikstjóra og leikhópsins, byggt á ævintýri H.C. Andersens um Litla Kláus og Stóra Kláus, ljóðinu um Sálina hans Jóns míns eftir Davíð Stefánsson, stórskemmtilegum dýrgripum úr gullkistu ævintýranna.
Æfingar ganga ljómandi vel enda engin önnur en snillingurinn Ágústa Skúladóttir sem leikstýrir hópnum að þessu sinni. Ágústa hefur sett upp fjöldan allan af leiksýningum bæði hér á landi og erlendis, hvort sem er í áhuga- eða atvinnuleikhúsum. Hún hefur unnið til ýmissa verðlauna í gegnum tíðina. Nú síðast hlaut hún Grímuna fyrir barnasýningu ársins 2018, fyrir sýninguna Í Skugga Sveins eftir Karl Ágúst Úlfsson.

Miðasala fer fljótlega í gang en í millitíðinni eru allir hvattir til ađ bæta „leik-selfoss“ við á Snapchat og fylgjast með. Þađ er aldrei að vita hverju verður tekið upp á! Eins má fylgjast međ á Facebook og á www.leikfelagselfoss.is.
Það vill enginn missa af þessari ævintýralegu sýningu, stútfullri af góđum húmor, tónlist og söng.

Nýjar fréttir