3.9 C
Selfoss
Home Fréttir Svanni – lánatryggingasjóður kvenna óskar eftir umsóknum

Svanni – lánatryggingasjóður kvenna óskar eftir umsóknum

0
Svanni – lánatryggingasjóður kvenna óskar eftir umsóknum
Svanni - Lánasjóður Kvenna.

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um lán og lánatryggingar í Svanna-lánatryggingasjóð kvenna. Umsóknarfrestur er til og með 29.10.2018 og má nálgast umsóknir á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

Eingöngu fyrirtæki sem eru í meirihlutaeigu konu/kvenna og undir stjórn konu/kvenna geta sótt um lánatryggingu.   Einnig  er gerð er krafa um að líkur séu verulegar á að verkefnið/fyrirtækið leiði til aukinnar atvinnusköpunar kvenna.

Fullbúin viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsóknum ásamt ítarlegum fjárhagsupplýsingum.

Unnt er að sækja um lán og ábyrgð vegna eftirtalinna þátta:

  • Markaðskostnaðar
  • Vöruþróunar
  • Nýrra leiða í framleiðslu eða framsetningu á vöru/þjónustu

Í umsókn skulu eftirfarandi atriði koma fram:

  • Upplýsingar um umsækjanda
  • Greinargóð lýsing á verkefni/fyrirtæki, markmiðum þess og ávinningi
  • Hverjir koma að umsókninni, og tilgreining samstarfsaðila
  • Viðskiptaáætlun (ítarleg fjárhags-, og framkvæmdaráætlun)
  • Lýsing á fjármögnun og staðfesting fjármögnunaraðila ef þeir eru til staðar

Hægt er að sækja um lán að hámarki 10 m.kr og eru lánin veitt hjá Landsbankanum sem er samstarfsaðili sjóðsins.

Stjórn Svanna fer yfir og metur umsóknir í samvinnu og samráði við Landsbankann og er sameiginleg ákvörðun tekin um veitingar lánatrygginga.

Nánari upplýsingar veitir Ásdís Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Svanna í síma 513-7080  og í asdis.gudmundsdottir@vmst.is.
Ennfremur veitir starfsfólk útibúa Landsbankans upplýsingar um lánin.

www.atvinnumalkvenna.is