Fannst ráfandi á sokkaleistunum í vímuástandi

Lögreglan á Suðurlandi
Lögreglan á Suðurlandi

Í dagbók Lögreglunnar á Suðurlandi kemur fram að tilfinning lögreglumanna sé að í mjög vaxandi mæli séu að koma upp afskipti af einstaklingum sem eru, vegna langvarandi kannabisneyslu, í geðrofi og engin leið að ná til viðkomandi. Þannig þurfti að vista ungan mann, sem fannst ráfandi á sokkaleistunum á Selfossi, í fangaklefa um liðna helgi. Maðurinn var í alvarlegu geðrofi, taldi sig vera af öðrum heimi og ófær um að gæta öryggis síns. Ekki fékkst pláss á viðeigandi sjúkrastofnun vegna vímuástands viðkomandi og að endingu tóku aðstandendur viðkomandi við honum. Ljóst er að allir þeir sem láta sig uppeldi varða, þ.m. fjölmiðlar þurfa að taka ábyrgð á því samfélagi sem við búum í og halda á lofti skaðsemi kannabisefna. Óábyrgum aðilum hefur, undanfarin ár, liðist að fjalla gagnrýnilaust um þessi efni í fjölmiðlum líkt og neysla þeirra sé fólki skaðlaus.