8.4 C
Selfoss
Home Fréttir Frístundaakstur í Árborg haustið 2018

Frístundaakstur í Árborg haustið 2018

0
Frístundaakstur í Árborg haustið 2018
Frístundaakstur verður haldið áfram á vorönn í Árborg.

Frístundaakstur hófst innan Sveitarfélagsins Árborgar mánudaginn 3. september sl. í samstarfi við Guðmund Tyrfingsson ehf.

Frístundabíllinn sem mun aka alla virka daga kl. 13:00–15:30 hefur það hlutverk að keyra börn frá frístundaheimilum og skóla í íþrótta- og frístundastarf innan sveitarfélagsins. Öll börn geta nýtt sér frístundabílinn og fyrsta árið mun sveitarfélagið ekki innheimta neitt gjald í bílinn.

Ekki verður neinn starfsmaður í frístundabílnum en foreldrar eru hvattir til að fara fyrstu ferðina með börnunum sínum til að kenna þeim á aðstæður.

Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða eru allar ábendingar vel þegnar. Hægt er að senda þær ásamt fyrirspurnum á netfangið bragi@arborg.is eða hafa samband í síma 480 1900. Frístundabíllinn keyrir frá 3. september til og með 21. desember samkvæmt tímatöflu. Ekið er alla virka daga þar á meðal merkta frídaga í grunnskólum líkt og vetrarfrí eða aðra starfsdaga.

Um tvær akstursleiðir er að ræða:
Leið 1: Innanbæjar á Selfossi
Leið 2: Eyrarbakki, Stokkseyri, Selfoss.

Nánari upplýsingar um akstursleiðir og tímatöflur er að finna á heimasíðu Árborgar (hér).