5 C
Selfoss

Uppskeruhátíð í Hrunamannahreppi á morgun

Vinsælast

Uppskeruhátíðin Matarkistan Hrunamannahreppur verður haldin á morgun laugardaginn 1. september. Dagskráin hefst með uppskerumessu í Hrunakirkju kl. 11:00. Þar verða leikir og grill eftir messu og eru allir velkomnir. Helstu atriði dagskrárinnar eru eftirfarandi:

Félagsheimilið á Flúðum. Matarkistan markaður kl. 12:00-17:00. Matvæli úr sveitinni. Ferskt grænmeti og góðgæti beint frá býli, Kjöt frá koti, kræsingar í krukkum, bakkelsi, handverk o.fl. Kvenfélagið verður með vöfflukaffi og kleinusölu í veitingastofu.

Bjarkarhlíð Flúðum opið hús og garður. Anna Magnúsdóttir handverkskona býður gesti velkomna heim í vinnustofu sína kl. 13:00-17:00.

Leikur að List. Handverkshús og dúkkusýning, Laugarlandi, Flúðum. kl. 12:00-17:00. Gestum boðið að þiggja kaffi, rabbabaradjús og hjónabandssælu. Rabbi rósabóndi verður með tilboð á rósabúntum og steinselju.

Samansafnið Sólheimum Hrunamannahreppi. Opið kl. 12:00-17.00, 1. og 2. september. Minjasafn, gamlir bílar. Til sölu verður heimagert bakkelsi, konfekt, broddur, ullarvörur o.fl. Aðgangur 1000 kr. frítt fyrir börn. 6,5 km frá Flúðum

Markavöllur. Fótboltagolf 18 holur, opið kl. 13:00-16:00. Völlurinn er 4 km sunnan við Flúðir við veg nr. 30.

Litla Melabúðin Flúðum. Opið kl. 12:00-18:00 á uppskerudaginn. Fjölbreytt úrval af fersku grænmeti, kjöt frá koti og alls kyns góðgæti beint frá býli.

Veitingahúsið Flúðum, Kaffi Grund. Vaffla með rjóma og kakó/kaffi á kr. 1.500, kl.13:00-17:00.

Hótel Flúðir. Happy hour kl. 14:00-17:00, 0,5 l. bjór kr. 700 rautt/hvítt glas kr. 800, í notalegu umhverfi bæði inni og úti ef veður leyfir.
Tilboð kvöldsins ekki af verri endanum. Rjómalöguð Blómkálssúpa „glænýtt Flúða-blómkál“ beint frá bónda, BBQ svínarif með brakandi fersku Flúða-salati og kartöflum 4.500 kr. á mann. Borðapantanir í síma 486 6630.

Efra-Sel golfvöllurinn. „Opna íslenska grænmetismótið“ punktakeppni með fullri forgjöf (36). Keppt er í fjórum flokkum; karla, kvenna og barna (14 ára og yngri-18 holur) og barnaflokki (12 ára og yngri-9 holur). Mótsgjald aðeins 3.500 kr./fullorðna og frítt fyrir þátttakendur í barnaflokkum. Skráning og upplýsingar á www.golf.is og 486-6454 eða gf@kaffisel.is. Ath. Skráning í barnaflokk (12 ára og yngri) í síma og netpósti. Sölufélag garðyrkjumanna er aðalstyrktaraðili mótsins www.islenskt.is

Kaffi-Sel, veitingastaður. Flottur matseðill, hráefni úr héraði, vegan réttir, salöt, súpur, „gourmet“ hamborgarar og okkar rómuðu pizzur.
Þessi helgi er síðasta helgin í sumar þar sem boðið er upp á Dögurðinn (brunch), kl. 11-14. Opið til kl. 21:30 alla helgina, www.kaffisel.is s.486 6454. Gréta Gísladóttir listakona verður með málverk til sýnis í golfskálanum á Efra-Seli, olíu- og acryl-verk. Allir velkomnir meðan veitingastaðurinn er opinn.

Flúðasveppir Farmers Bistro. Opið kl. 12:00-17:00. Boðið verður upp á kynningu í um 20 mín. á ræktun Flúða-Jörfa og Flúðasveppa og innlit í sveppaklefa kl. 12:00, 13:00, 14:00 og 15:00. Mæting í anddyri Farmers Bistro. Sælkerahlaðborðið sem slegið hefur í gegn á 2.390 kr. Sveppasúpa með hvítum matarsveppum, kastaníusveppum og portobello.
Heimabökuð hvítlauksbrauð, súrdeigsbrauð og byggbrauð. Papriku/chilli sulta, paprikusalsa, papriku/sveppa tapenade, marineraðir sveppir, sveppasmjör, hvítlauks/basilsmjör og smjör.

Minilik eþíopískt veitingahús á Flúðum. Opið kl. 14:00-21:00.

Litla Húsið, Suðurbrún 7, Flúðum. Markaður með gamla fallega muni. Opið kl. 12:00-17:00.

Verslunin Samkaup-Strax. Opið kl. 10:00-19:00, ýmis tilboð í gangi.

Sundlaugin Flúðum. Opið kl. 13:00-18:00.

Frisbígolfvöllur í Lækjargarðinum á Flúðum. Góð skemmtun.

www.fludir.is og www.sveitir.is

Nýjar fréttir