2.8 C
Selfoss
Home Fréttir Óskað eftir vitnum að líkamsárás á Flúðum

Óskað eftir vitnum að líkamsárás á Flúðum

0
Óskað eftir vitnum að líkamsárás á Flúðum

Lögreglan á Suðurlandi óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað mánudaginn 6. ágúst síðasliðinn um klukkan 01:40. Þar veittist hópur manna að tveimur karlmönnum. Árásin átti sér stað fyrir utan aðalinnganginn að Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.

Sími lögreglunnar á Suðurlandi er 444 2000. Einnig er hægt að hafa samband í gegnum netfangið sudurland@logreglan.is.