1.7 C
Selfoss

Fab Lab smiðja tekur til starfa í FSu í haust

Vinsælast

Fab Lab smiðja mun til taka til starfa í Fjölbrautaskóla Suðurlands í haust. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og Héraðsnefnd Árnesinga, auk Fjölbrautaskólans, hafa gert með sér samkomulag um uppsetningu og rekstur smiðjunnar og mun Nýsköpunarmiðstöð Íslands styrkja smiðjuna næstu þrjú árin með fjárframlagi og faglegu samstarfi um reksturinn.

Sunnlensk fyrirtæki, auk Atorku – félags atvinnurekenda á Suðurlandi, leggja til meginþorra þess fjármagns sem þarf til þess að fjármagna tækjakaupin fyrir Fab Lab smiðjuna. Fab Lab smiðjur eru settar upp og starfræktar í stíl við Fab Lab aðferðarfræðina sem upprunnin er hjá MIT háskólanum í Bandaríkjunum.

Magnús St. Magnússon hefur verið ráðinn til smiðjunnar og hefur hann veg og vanda af uppsetningu og skipulagningu á starfseminni. Smiðjan hefur það hlutverk að þjálfa sköpunargáfu einstaklinga og hjálpa þeim að hrinda hugmyndum í framkvæmd með því að hanna, móta og framleiða hluti með aðstoð stafrænnar tækni. Með uppsetningu og rekstri Fab Lab smiðju opnast hvetjandi umhverfi til nýsköpunar, menntunar og þróunar í héraðinu en auk nemenda í FSu og grunnskólum svæðisins, munu fyrirtæki og almenningur hafa aðgang að smiðjunni.

Random Image

Nýjar fréttir