0.3 C
Selfoss

Fjölmenni við brautskráningu og skólaslit ML

Vinsælast

Brautskráning og skólaslit Menntaskólans að Laugarvatni var laugardaginn 26. maí sl. að viðstöddu fjölmenni en um 600 manns voru viðstaddir athöfnina að þessu sinni.

Brautskráðir voru sextíu og fimm nýstúdentar. Af þeim voru tuttugu og tveir úr 4. bekk, sextán af félagfræðabraut og sex af náttúrufræðabraut, og fjörtíu og þrír úr 3. bekk, tuttugu og tveir úr félags- og hugvísindabraut og tuttugu og einn úr náttúruvísindabraut. Þetta er mesti fjöldi sem hefur verið útskrifaður á skólaslitum í sögu skólans, enda í fyrsta sinn sem nemendur í þriggja ára kerfi eru útskifaðir.

Dagskrá var hátíðleg og hefðbundin. Halldór Páll Halldórsson skólameistari flutti ræðu, kór skólans söng við athöfnina og Áslaug Harðardóttir, staðgengill skólameistara og áfangastjóri skólans, flutti annál skólaársins. Fulltrúi 20 ára júbílanta hélt tölu og afhenti skólameistara gjafir afmælisárganga. Gjafir júbílanta voru að þessu sinni fjárstyrkir til kórsins, myndasíðu NEMEL og í Styrktarsjóð Kristins og Rannveigar.

Fjörutíu ára júbílantar færðu skólanum málverk til minningar um Guðrúnu Erlu Ingvadóttur, skólsystur þeirra, sem lést fyrr í vor. Ávarp nýstúdenta flutti Sigrún Birna P. Einarsson fv. stallari. Skólameistari afhenti Guðjóni Elíssyni viðurkenningu fyrir alúð og einstakt framlag hans við endurgerð skólapjalda skólans og sleit að því loknu skóla í 65. sinn.

Dux nýstúdenta fjórða bekkjar er Arndís Hildur Tyrfingsdóttir frá Ljónsstöðum í Flóa með 9,17 í vegið meðaltal allra áfanga áranna fjögurra og semidux Rúnar Guðjónsson frá Melum í Hrunamannahreppi með vegið meðaltal 9,12.

Dux nýstúdenta þriðja bekkjar er Írena Rut Stefánsdóttir frá Hveragerði með 9,35 í vegið meðaltal allra áfanga áranna þriggja og semidux Bjarnveig Björk Birkisdóttir frá Brekku í Þykkvabæ með vegið meðaltal 9,23. Dux scholae nýliðins vetrar með einum aukastaf, er Írena Rut Stefánsdóttir frá Hveragerði með einkunnina 9,9. Semi duces scholae eru tveir fyrstu bekkingar en það er þær Anna Björg Sigfúsdóttir frá Borgarfelli í Skaftártungu og Helga Margrét Óskarsdóttir frá Hruna í Hrunamannahreppi, báðar með einkunnina 9,4.

Í ellefta sinn voru afhentir styrkir úr styrktarsjóði fyrrverandi skólameistarahjóna, Kristins Kristmundssonar og Rannveigar Pálsdóttur, en styrki úr honum hljóta, samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins, nemendur Menntaskólans að Laugarvatni sem sýnt hafa frábæran dugnað, hæfileika og ástundun í námi. Að þessu sinni hlutu styrk þau Arndís Hildur Tyrfingsdóttir frá Ljónsstöðum, Rúnar Guðjónsson frá Melum, Dana Heiða Becker frá Teigi í Laugarási, Írena Rut Stefánsdóttir frá Hveragerði, Bjarnveig Björk Birkisdóttir frá Brekku og Ragnheiður Olga Jónsdóttir frá Laugarvatni.

Fjöldi nýstúdenta hlaut viðurkenningu bókaformi fyrir námsárangur í einstökum greinum og í heild svo og fyrir störf að félagsstörfum og í þágu skólans.

Skólameistiri ML veitir Guðjóni Elissyni þakklætisvott fyrir endurgerð skólaspjalda ML.

Á útskrift var Guðjóni Elissyni, en hann er stúdent frá ML 1978, færður skjöldur með merki skólans og áletruninni: „Þakkir fyrir alúð og einstakt framlag við endurgerð skólaspjalda Menntaskólans að Laugarvatni“ en Guðjón vann upp með stafrænum hætti fjögur skólaspjöld með myndum af nemendum skólans á árabilinu 1975 til 1984, spjöld sem voru farin að láta mikið á sjá. Ráðist var í verkið að frumkvæði 20 ára júbilanta árið 2009 og vann Guðjón það til dagsins í dag í hjáverkum af einstakri alúð.

Random Image

Nýjar fréttir