8.9 C
Selfoss

70 ára kennaraafmæli frá Kennaraskóla Íslands

Vinsælast

Á þessu vori minnumst við að 70 ár eru liðin er við lukum kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 27. maí 1948. Við vorum 24, sem fögnuðu þessum áfanga og „Lögðum út á lífsins braut um ljósa morgunstund“ vorið 1948 en erum núna fjögur eftir.

Sérstaklega er eftirminnilegt það andrúmsloft er var alla tíð í skólanum. Það ríkti ólýsanlega mildur agi yfir öllu, en undirtónninn var bundinn uppeldi, mannrækt og siðferði. Engar almennar skólareglur voru í skólanum og vakti það athygli okkar, en þegar að var gáð þá kom sú skýring frá Freysteini Gunnarssyni skólastjóra, að þá verði engar reglur brotnar og engum refsað. Hann ætlaðist til þroska og sjálfsaga hjá nemendum og taldi að í skólanum væru nemendur sem ættu að bera ábyrgð á sjálfum sér í samræmi við góða lífshætti og siðvenjur. Að við skyldum haga störfum okkar og framkomu eins og við vildum að framkoma barnanna yrði þegar við færum að kenna.

„Eins og þú vilt aðrir geri
athöfn þín í sannleik veri“

Kennaraefnin áttu strax að temja sér þá framkomu sem gæti orðið fyrirmynd barnanna. Svo er það annað mál hvort okkur hafi tekist að nýta þau heilræði sem gefin voru fyrir 70 árum.

Brautskráðir söngkennarar frá K.Í. vorið 1948. Myndin er tekin í skrúðgarði Kennaraskólans. Aftari röð: Hjörtur Þórarinsson, Albert Jóhannsson, Magnús Bæringur Kristinsson og Jón Hjörleifur Jónsson. Fremri röð: Guðmundur Matthíasson kennari, Ingiríður Halldórsdóttir, Guðrún Sveinsdóttir, Ólöf Pétursdóttir og Sigurður Birkis kennari.

Hópurinn var mjög samstilltur, og myndaðist fljótt mikið félagslíf. Við vorum með sjálfstæðan fjórradda kór í bekknum okkar, gott söngfólk og undirleikara. Það var ekki tilviljun ein að við vorum sex sem tókum viðbótarnmám og próf í söngfræði, söng og orgelleik. Ísak Jónsson,einn kennari okkar kvaddi með þeim orðum, „að þessi bekkur hefði haft yfir sér aðlaðandi samstilltan blæ“.

Þessi blær hélst alla tíð. Oft hittumst við á liðnum árum og rifjuðum upp samverustundirnar í skólanum. Síðasta minningarstund okkar var í apríl s.l er við kvöddum ókrýndan bekkjarforingja, okkar Dr. Þuríði Kristjánsdóttur.

Selfossi, maí 2018, Hjörtur Þórarinsson

Nýjar fréttir