7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Vegagerðin fellst á nýja tengingu við Tryggvatorg á Selfossi

Vegagerðin fellst á nýja tengingu við Tryggvatorg á Selfossi

0
Vegagerðin fellst á nýja tengingu við Tryggvatorg á Selfossi

Vegagerðin hefur undirritað yfirlýsingu þar sem fallist er á að ný tenging við Tryggvatorg á Selfossi verði opnuð þegar gatnagerð er lokið í A- og B-götu skv. deiliskipulagi fyrir miðbæ Selfoss. Verði umferðaróhöpp sem rekja má til nýrrar tengingar tíð eða alvarleg áskilur Vegagerðin sér rétt til að fara fram á að tengingunni verði lokað eða gripið til annarra aðgerða til að draga úr óhöppum, s.s. að snúa einstefnu við í A-götu sem tengist Tryggvatorgi.

Er í yfirlýsingunni horft til þess að niðurstöður umferðarspár sem VSÓ gerði fyrir nýjan miðbæ skv. hermun á umferð eru þær að áhrif af nýju deiliskipulagi séu óveruleg á afkastagetu Tryggvatorgs. Auk þess hefur verið brugðist við athugasemdum Vegagerðarinnar er varða aðkomu að lóðinni við Eyraveg 5, en annarri útkeyrslunni frá lóðinni var lokað sl. sumar. Engu að síður kallar aukið byggingarmagn á aukna umferð, og því áskilur Vegagerðin sér þann rétt sem að framan greinir.

Yfirlýsing vegna tengingar við Tryggvatorg á Selfossi frá nýjum miðbæ