8.9 C
Selfoss
Home Fréttir Ekkert samkomulag um meirihluta í Árborg

Ekkert samkomulag um meirihluta í Árborg

0
Ekkert samkomulag um meirihluta í Árborg
Helgi S. Haraldsson.

Helgi Sigurður Haraldsson, oddviti Framsóknar og óháðra í Árborg, hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna umræðu um væntanlegan meirihluta í sveitarfélaginu:

„Að gefnu tilefni, vegna þess sem bæði fulltrúar annarra framboða í Árborg og ógreindir aðilar í sveitarfélaginu hafa látið hafa eftir sér við kjósendur undanfarna daga, skal skýrt tekið fram að hvorki undirritaður né framboð Framsóknar og óháðra, hefur gert neitt samkomulag við framboð Sjálfstæðismanna um að mynda nýjan meirihluta eftir kosningar, missi þeir sinn meirihluta.

Framboð Framsóknar og óháðra gengur óbundið til kosninga nk. laugardag. Við hjá Framsókn og óháðum erum tilbúin að starfa með öllum þeim sem vilja taka undir með okkar stefnumálum. Okkar markmið er að horfa til framtíðar og koma stefnumálum okkar í framkvæmd.“

Helgi Sigurður Haraldsson oddviti, Framsóknar og óháðra í Árborg.