4.4 C
Selfoss

Menntaskólinn að Laugarvatni handhafi Gulleplisins 2018

Vinsælast

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, afhenti Menntaskólanum að Laugarvatni Gulleplið 2018 fyrir framúrskarandi heilsueflingarstarf framhaldsskóla við hátíðlega athöfn á Laugarvatni þann 3. maí sl. Sóttvarnarlæknir, Þórólfur Guðnason afhenti skólanum við þetta tilefni smokkasjálfsala að gjöf, en allir framhaldsskólar landsins fá afhentan slíkan sjálfsala á næstu dögum.

Gulleplið sem nú er veitt í sjöunda sinn er viðurkenning fyrir framúrskarandi starfs er kemur að jafnrétti og kynheilbrigði á skólaárinu 2017-18. Alls bárust umsóknir frá átta framhaldsskólum og var það í höndum dómnefndar á vegum Embættis landlæknis að fara yfir og meta umsóknirnar. Niðurstaða nefndarinnar var að Menntaskólinn að Laugarvatni hlyti viðurkenninguna og tóku fulltrúar nemenda í jafnréttisráði skólans við viðurkenningunni fyrir hönd skólans. Þau eru skólaráðs-fulltrúarnir Ingunn Ýr Scram, Þórný Þorsteinsdóttir og Þórarinn Guðni Helgason í jafnréttisráði. Helga Kristín Sæbjörnsdóttir er verkefnastjóri Heilsueflandi framhaldsskóla (HeF).

Allir nemendur í kynjafræði
Í Menntaskólanum að Laugarvatni fara allir nemendur í kynjafræði, þar sem nemendur læra m.a. að beita hugtökum kynjafræðinnar, greina samfélagið með kynjagleraugum og vera meðvitaðir um réttindi sín varðandi jafnréttismál. Saga jafnréttisbaráttunnar, kynheilbrigði og heilbrigð samskipti kynjanna eru kynnt til sögunnar þar sem kynferðisleg áreitni, kynferðislegt ofbeldi, stafrænt ofbeldi, klámvæðing, mörk, samþykki, mikilvægi samskipta í kynlífi eru meðal efnistaka.
Ýmis önnur verkefni eru unnin innan skólans eins og Jafnréttisvakning þar sem nemendur unnu ýmis verkefni tengd málefninu á liðnum vetri. Jafnréttisnefnd og jafnréttisfulltrúi starfa innan nemendafélags skólans og vinna saman að jafnréttisáætlun og markmiðum ásamt því að fylgja þeim eftir. Auk þess hafa verið haldin erindi innan skólans um samskipti og virðingu, fötlunarfordóma og hinsegin málefni sem dæmi. Námskeið á vegum samtaka um líkamsvirðingu var haldið í vetur og farið var í forvarnarferð. Jafnréttisnálgun er bæði nýtt meðal kennara og nemenda.

Allir framhaldsskólar heilsueflandi skólar
Heilsueflandi framhaldsskóli hófst árið 2009 og nú eru allir framhaldsskólar landsins sem taka þátt, fyrir utan örfáa sérskóla. Nánar um Heilsueflandi framhalsskóla hér: https://www.landlaeknir.is/heilsa-og-lidan/verkefni/item12345/Heilsueflandi_framhaldsskoli Verkefnið lýtur að fjórum meginviðfangsefnum: Næringu, hreyfingu, geðrækt og lífsstíl. Markmið framhaldsskólanna mótast af því viðhorfi að heilsueflandi umhverfi bæti líðan nemenda, stuðli að bættum námsárangri og dragi úr brottfalli.
Áður hafa Flensborgarskólinn í Hafnarfirði, Verzlunarskóli Íslands, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Borgarholtsskóli og Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ hlotið viðurkenninguna.

Nýjar fréttir