0.6 C
Selfoss

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Þorlákshöfn

Vinsælast

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar 2018 í 7. bekk fyrir Árborg, Hveragerði og Þorlákshöfn var haldin í Versölum í Þorlákshöfn þriðjudaginn 13. mars sl. Lokahátíðin er samstarfsverkefni grunnskólanna, Radda, skólaþjónustu Árborgar og Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings. Á lokahátíðinni keppa þrír keppendur frá hverjum skóla, sem hafa verið valdir í forkeppni í sínum skóla.

Skólarnir sem áttu fulltrúa á hátíðinni voru Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri, Grunnskólinn í Þorlákshöfn, Grunnskólinn í Hveragerði, Sunnulækjarskóli og Vallaskóli. Í fyrstu umferð lásu keppendur úr skáldsögu Sigrúnar Eldjárn, Strokubörn á Skuggaskeri. Í annarri umferð lásu þau valin ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Í þriðju og síðustu umferðinni lásu nemendur svo ljóð að eigin vali. Verðlaunahafar frá í því í fyrra kynntu skáld keppninnar í ár.

Elísa Jóhannsdóttir sem nýverið fékk íslensku barnabókaverðlaunin fyrir bók sína, Er ekki allt í lagi með þig, flutti ávarp til keppenda. Yfirskrift ávarpsins var „Lestur er hættulegur“ og fjallaði um hversu mikilvægt er að vega og meta allt sem maður les. Milli atriða voru tónlistaratriði á vegum Tónlistarskóla Árnesinga og gaf það samkomunni hátíðlegan blæ. Dómnefndina skipuðu þau Björk Einisdóttir, varaformaður Radda sem var formaður dómnefndar, Ásmundur Sverrir Pálsson, íslenskufræðingur, og Íris Blandon, leikari.

Sigurvegari í ár var Hugrún Tinna Róbertsdóttir úr Sunnulækjarskóla, í öðru sæti var Hildur Maja Guðmundsdóttir, einnig úr Sunnulækjarskóla, og í þriðja sæti var Ingunn Guðnadóttir, Grunnskólanum í Þorlákshöfn.

Nýjar fréttir