1.7 C
Selfoss

Listi Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna í Rangárþingi eystra kynntur

Vinsælast

Á félagsfundi Kára, félags Sjálfstæðismanna í Rangárþingi eystra, sem haldinn var síðastlinn fimmtudag, var D-listi Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna vegna komandi sveitarstjórnarkosninga samþykktur. Skoðanakönnun á meðal félagsmanna Kára var haldin og tók uppstillingarnefnd niðurstöður hennar og lagði fram listann í heild sinni. Jafnt kynjahlutfall er á listanum, sjö konur og sjö karlar. Efsta sætið skipar Anton Kári Halldórsson byggingafulltrúi og í öðru sæti er Elín Fríða Sigurðardóttir viðskiptafræðingur. Þá var samþykkt að Anton Kári verði sveitarstjóraefni listans.

  1. Anton Kári Halldórsson
  2. Elín Fríða Sigurðardóttir
  3. Guðmundur Viðarsson
  4. Harpa Mjöll Kjartansdóttir
  5. Angelia Fjóla Vilhjálmsdóttir
  6. Baldur Ólafsson
  7. Esther Sigurpálsdóttir
  8. Kristján Fr. Kristjánsson
  9. Ingveldur Anna Sigurðardóttir
  10. Bragi Ágúst Lárusson
  11. Ragnheiður Jónsdóttir
  12. Páll Eggertsson
  13. Heiða Björg Scheving
  14. Svavar Hauksson

Nýjar fréttir