-0.6 C
Selfoss

Gerðust túristar í einn dag og tóku upp tónlistarmyndband

Vinsælast

Þórir Geir og Gyða Margrét, sem syngja eitt af þeim tólf lögum sem keppa í Söngvakeppninni í ár um að verða framlag Íslands í Eurovision, hafa gefið út myndband við lagið sitt sem ber heitið „Brosa“. Myndbandið var tekið upp á Suðurlandi og fara Gullfoss, Geysir og Kerið meðal annars með stór hlutverk í því.

„Hugmyndin var að gerast túristar í okkar eigin landi í einn dag og heimsækja nokkrar af okkar fallegu náttúruperlum á Suðurlandi. Við vöknuðum eldsnemma til þess að ná birtunni, fórum á næstu bensínstöð og fengum okkur pylsu með öllu í morgunmat og lögðum svo á stað. Það var fáránlega kalt þennan morgunn en maður gleymdi því fljótt því það var svo gaman hjá okkur yfir daginn.

Það var ótrúlega skemmtileg upplifun að taka upp myndband í svona mikilli fegurð og erum við virkilega ánægð með útkomuna. Við vonum svo auðvitað að myndbandið fái fólk til að brosa sem er eimmitt boðskapur lagsins,“ segja þau Þórir Geir og Gyða Margrét en mikil spenna er í hópnum sem mun flyta lagið Brosa á fyrra undankvöldinu þann 10. febrúar næstkomandi.

Höfundar lags og texta eru þeir Guðmundur Þórarinsson og Fannar Freyr Magnússon. Bassi Ólafsson sá um hljóðblöndun í Stúdíó Tónverki.

Myndbandið við lagið má sjá hér fyrir neðan:

Random Image

Nýjar fréttir