2.8 C
Selfoss
Home Fréttir Frístundastyrkur í Árborg hækkaður í 30.000 kr.

Frístundastyrkur í Árborg hækkaður í 30.000 kr.

0
Frístundastyrkur í Árborg hækkaður í 30.000 kr.
Fótboltastrákar á Selfossvelli. Mynd: UMFS.

Nú í upphafi árs 2018 ákvað bæjarstjórn Árborgar að hækka frístundastyrk Árborgar í 30.000 kr. á hvert barn. Styrkurinn er fyrir 5–17 ára börn með lögheimili í sveitarfélaginu. Hægt er að nota styrkinn í flestar frístundir líkt og íþróttaæfingar, tónlistarnám, líkamsrækt, skáta, dans og fleira.

Foreldrar og forráðamenn geta nýtt styrkinn í gegnum skráningarkerfið Nóra þegar gengið er frá skráningu barns í ákveðið frístundastarf. Hægt er að sjá framboð á frístundum inn á Mín Árborg undir frístundastyrkur. Einnig er hægt að fara beint inn á www.arborg.felog.is.

Hægt er að nota styrkinn út árið 2018 en flestir hafa nýtt styrkinn ár hvert að hausti þegar gengið er frá skráningum fyrir vetrarstarið. Foreldrar geta einnig nýtt styrkinn strax við skráningu barns í frístund og lækkar þá gjaldið sem styrknum nemur.

Frístundastyrkurinn var tekinn upp árið 2008 og var þá 10.000 kr. Styrkurinn hækkaði í 15.000 kr. 2014 og nú 2018 í 30.000 kr.