5.6 C
Selfoss

Jólatré ársins er úr Arnarheiði

Vinsælast

Sú hefð hefur skapast í Hveragerði að jólatré bæjarbúa sem staðsett er í smágörðunum er ávallt gjöf frá bæjarbúum sem nýta þetta tækifæri til að gefa trjám framhaldslíf sem ekki rúmast lengur í einkagarðinum.

Í ár eru það hjónin Jenný Hugrún Wiium og Þorsteinn Hansen sem gáfu jólatréð en þau búa í Arnarheiði. Jólatréð sem nú prýðir smágarðana hefur í áraraðir verið afar fallega skreytt um jól og verið til mikillar prýði í götunni. En núna var komið að leiðarlokum og því fékk tréð þetta góða hlutverk að gleðja alla bæjarbúa á aðventu og um hátíðina. Það voru síðan barnabörnin þau Jenný Sigrún og Maríus sem fengu það hlutverk að tendra ljósin á trénu á fyrsta sunnudegi í aðventu.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá er það ekki einfalt verk hvorki að fella, flytja eða koma niður jólatré bæjarins og eiga starfsmenn áhaldahúss heiður skilinn fyrir þá vinnu eins og reyndar við alla vinnu við skreytingar bæjarins sem þeir eiga allan heiður af.

Frétt af vef Hveragerðisbæjar.

Nýjar fréttir