10 C
Selfoss

Hreinsistöð tekin í notkun í Brautarholti

Vinsælast

Síðastliðinn föstudag var tekin formlega í notkun skólphreinsistöð af fullkominni gerð við Brautarholt að viðstöddum góðum gestum. Stöðin mun þjóna þéttbýliskjarnanum í Brautarholti ásamt tjaldsvæði og gistiþjónustu sem þar er rekin.

Börkur Brynjarsson verkfræðingur hjá Umhverfis- og tæknisviði Uppsveita er aðalhönnuður mannvirkisins. Verktaki var Georg Kjartansson á Ólafsvöllum.

Með tilkomu hreinsistöðvarinnar er stigið gott framfaraskref í umhverfismálum sveitarfélagsins. Næg afkastageta er í stöðinni til að mæta vexti á svæðinu.

Nýjar fréttir