4.4 C
Selfoss

Jól í skókassa í Grunnskólanum á Hellu

Vinsælast

Fyrir skömmu komu í heim­sókn í Grunnskólann á Hellu sjö ungmenni frá Úkraínu ásamt sr. Evgeny á vegum verkefnisins „Jól í skókassa“. Grunnskólinn á Hellu hefur tekið þátt í verkefninu nær því frá upphafi eða í um 13 ár. Verkefnið byggir á því að börn á Íslandi gefa jólagjafir sem KFUM/K koma svo til skila til munaðarlausra eða illa stæðra barna í Úkraínu. Gestirnir kynntu verkefnið fyrir öllum nemendum skólans ásamt Þórhöllu Þráins­dóttur sem hefur séð um þetta frá upphafi. Í skólanum hefur Sigur­lína Magnúsdóttir verið með sérstakt „skókassaval“ þar sem nemendur eldri bekkja hafa saumað og prjónað í kassana. Krakkarnir höfðu gaman af að fá gestina og spurðu ungmennin spjörunum úr um lífið í Úkraínu. Þórhalla mun taka á móti jóla­skókössum dagana 9.–10. nóv­em­ber í skólanum.

Nýjar fréttir