7.8 C
Selfoss
Home Fréttir Sagnaþættir Guðfinnu Ragnarsdóttur

Sagnaþættir Guðfinnu Ragnarsdóttur

0
Sagnaþættir Guðfinnu Ragnarsdóttur

Sagnaþættir Guðfinnu heitir ný bók sem kemur út hjá Bókaútgáfunni Sæmundi. Höfundurinn Guðfinna Ragnarsdóttir er ritstjóri Fréttabréfs Ættfræðifélagsins og fyrrverandi kennari.

Í Sagnaþáttum Guðfinnu kynnumst við lífi alþýðufólks víðsvegar um landið. Hér eru ættarsögur úr Dölunum, frásögn af góðmenninu Skapta lækni í Reykjavík og harmþrungin örlög Guðnýjar skáldkonu á Klömbrum í Aðaldal. Skeiðamenn af Bernhöftsætt birtast okkur ljóslifandi og Óli Skans er dreginn fram í dagsljósið.

Sögusvið þáttanna er jafnt fyrir norðan og sunnan en teygir sig út fyrir landsteinana í tveimur síðustu þáttunum.

Hér eru sögur úr ættanna kynlega blandi framreiddar af sagnakonunni Guðfinnu sem hefur frá blautu barnsbeini lagt sig eftir fróðleik og örlögum genginna kynslóða.