2.8 C
Selfoss

Tólfsporavinna að hefjast í Selfosskirkju

Vinsælast

Selfosskirkja býður upp á sjálfstyrkingarprógramið 12 sporin – Andlegt ferðalag líkt og undanfarin ár. Prógramið hefst miðvikudaginn 20. september nk. kl. 20:00. Öllum er velkomið að mæta á þrjá opna kynningarfundi þar sem fólk hefur tækifæri til að sjá út á hvað prógramið gengur.

Á fjórða fundi verður hópnum lokað og unnið er út frá vinnubókinni 12 sporin – Andlegt ferðalag. Unnið er í litlum lokuðum hópum. Vinnan gengur út á að deila eigin reynslu, styrk og von og mæta á vikulega fundi sem eru haldnir á miðvikudagskvöldum kl. 20–22 í safnaðarheimili Selfosskirkju í allan vetur.

Kirkjan býður þátttakendum upp á þetta þeim að kostnaðarlausu, utan þess að þeir þurfa að kaupa vinnubókina sem er til sölu í Bókakaffinu á Selfossi. Vinir í bata munu leiða starfið af stað, en það er hópur fólks sem hefur farið sjálft í gegnum prógramið og tileinka sér Tólf sporin sem lífsstíl og hefur það að markmiði að gefa öðrum kost á því að kynnast þessu prógrami sem hefur reynst þeim vel.

Þessi tólfsporavinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu um leið og færnin eykst til þess að takast á við verkefni lífsins. Unnið er út frá 12 sporum AA samtakanna óháð því að um einhverja fíkn sé að ræða og er þess vegna opið öllum. Vinir í bata (VIB) eru með heimasíðu, viniribata.is. Þar er hægt að nálgast frekari upplýsingar um 12 sporin – Andlegt ferðalag.

Nýjar fréttir