-3.5 C
Selfoss

Árleg Haust-jeppaferð um næstu helgi

Vinsælast

Laugardaginn 23. september nk. eða um næstu helgi stendur Suðurlandsdeild ferðaklúbbsins 4×4 fyrir opinni jeppaferð. Þá gefst jeppaeigendum tækifæri til að reyna sig og sinn jeppa í akstri á hálendisvegum. Með í för verða reyndir jeppamenn á öflugum bílum til að aðstoða óvana bílstjóra. Farið verður inn í Sultarfit sem er fjallaskáli í umsjá Suðurlandsdeildarinnar.

Ferðin er opin fyrir alla sem eru á jeppa, breyttum sem óbreyttum. Þetta verður nokkuð krefjandi ferð og því ekki ráðlegt að koma á fjórhjóladrifnum fólksbílum. Þátttakendur þurfa að koma á jeppa í góðu lagi og með nægilegt eldsneyti. Einnig þarf fólk að vera vel útbúið til útiveru, í góðum skóm og skjólfatnaði og með nesti til dagsins.

Lagt verður af stað frá Olís Selfossi kl. 9:00 stundvíslega og komið heim síðdegis sama dag.

Engin formleg skráning verður í ferðina. Þátttakendur mæta bara á Olís Selfossi fyrir klukkan níu og gefa sig fram við fararstjórana sem verða á staðnum.

Í ferðinni býður klúbburinn upp á grillaðar pylsur fyrir alla þátttakendur.

Suðurlandsdeildin er á facebook (f4x4 Suðurlandsdeild) og þar verður hægt að sjá nánari upplýsingar. Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á sínum farartækjum og öllum bilunum eða óhöppum sem geta komið upp á.

Ef veðurútlit verður slæmt á laugardeginum verður ferðin mögulega færð yfir á sunnudaginn 24. september. Upplýsingar verða á facebook-síðunni.

Random Image

Nýjar fréttir