-5 C
Selfoss

Að liðnu ljósakvöldi í Múlakoti

Vinsælast

Vinafélag gamla bæjarins í Múlakoti er aðeins tveggja ára gamalt félag en er þegar farið að skapa sér hefðir. Ljósakvöld félagsins var haldið í annað sinn í gamla garðinum í Múlakoti síðastliðið laugardagskvöld. Nafnið og formið á hátíðinni er engin tilviljun heldur tenging við sögu staðarins. Á góðviðrisdögum voru veitingar iðulega bornar fram úti í garði, einkum þó um helgar. Bændurnir í Múlakoti virkjuðu bæjarlækinn árið 1928, löngu áður en sveitir landsins voru almennt rafvæddar. Ólafur Túbals listmálari, sonurinn á bænum, hélt til Kaupmannahafnar síðla vetrar 1929 í náms- og skemmtiferð. Þar hreifst hann af borginni við sundin og ljósunum í Tivoli og þegar heim var komið var garðurinn brátt upplýstur á síðsumarskvöldum með mislitum rafurljósum. Þetta var ógleymanleg upplifun gestum og nágrönnum.

Úr húsinu í Múlakoti í Fljótshlíð.

Helgi Jóhannesson formaður Vinafélagsins stjórnaði dagskránni. Ávörp fluttu Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Þórður Helgason og Vibeke Nörgaard Nielsen. Grétar Geirsson skemmti gestum með harmonikkuleik og lék jafnframt undir fjöldasöng. Að dagskrá lokinni voru bornar fram veitingar, kaffi og ástarpungar, og húsið opnað þeim sem skoða vildu. Í matsalnum er nú sýning helguð hjónunum Láru Eyjólfsdóttur og Ólafi Túbals. Hópar, sem þess óska, geta fengið leiðsögn um húsið, ef pantað er með fyrirvara.

Liðlega 80 gestir á öllum aldurskeiðum nutu góðrar kvöldstundar í Múlakotsgarðinum í blíðskaparveðri, logni, þurrviðri og 16°C hita, en rigning var allt í kring. Aðgangseyrir rennur óskiptur til uppbyggingar staðarins.

Nýjar fréttir