5.4 C
Selfoss

Vatni ekki sóað

Vinsælast

Að taka þátt í einum af stærstu skiptinemasamtökum Evrópu, Erasmus+, er bæði þroskandi og gefandi fyrir þá nemendur sem þar taka þátt. Verkefnin sem eru unnin gera nemendum og kennurum kleift að skiptast á reynslu við aðra utan landsteinanna og vinna saman að einu markmiði.

Fyrsti verkefnafundurinn var haldinn í Alcoy á Spáni. Á myndinni eru kennararnir Þór Stefánsson (þriðji frá vinstri), Ingunn Helgadóttir (fyrir aftan Svan) og Svanur Ingvarsson (fremst á mynd) ásamt kennurum frá Spáni og Slóvakíu.

Fjölbrautaskóli Suðurlands (FSu) hefur tekið þátt í fjölda verkefna og er um þessar mundir mitt í einu undir yfirskriftinni „Vatn, engin sóun“. Nú þegar hafa fulltrúar skólans, bæði nemendur og kennarar farið í heimsókn til Slóvakíu og Spánar, en tveir skólar í þessum löndum eru einmitt í samstarfi við FSu í þessu verkefni.

Næstu helgi er von á um 20 manna hópi frá þessum erlendu skólum og munu þau læra ýmislegt um vatn á Íslandi, hvernig það er nýtt og gildi þess hér á landi. Farið verður í ýmsar ferðir, svo sem heimsókn í virkjanir, fjallgöngur, einhverjir fossar skoðaðir og auðvitað hverir.

Ef hann skyldi rigna, þá er það bara hluti af verkefninu!

Nýjar fréttir