6.7 C
Selfoss

Vilja vernda Sigtúnsgarðinn á Selfossi

Vinsælast

Nokkrir íbúar í Sveitarfélaginu Árborg hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir ræða nýtt deiliskipulag miðbæjarsvæðis Selfoss. Jafnframt hafa þeir sett af stað undirskriftasöfnun gegn breytingu á deiliskipulaginu. Eftirfarandi yfirlýsing birtist í Dagskránni sem kom út í dag:

Ágætu íbúar Árborgar.

Nú er í auglýsingu deiliskipulagsbreyting sem snýr að miðbæjarsvæði Selfoss, eða Sigtúnsgarði og nærliggjandi svæðum. Skv. því skipulagi mun verulegur hluti Sigtúnsgarðsins fara í hendur þeirra aðila sem hyggja á framkvæmdir þar, Sigtúns þróunarfélags ehf. Ef deiliskipulagið verður samþykkt, eins og það er auglýst, munu íbúar Árborgar tapa stórum hluta af Sigtúnsgarðinum undir þá byggð sem áformuð er, þó öðru sé haldið fram.

Loftmynd fengin af ja.is þar sem að búið er að teikna upp svæðin tvö. Rautt afmarkar byggingarlóðir og grænt táknar svæði Sigtúnsgarðs sem sveitarfélagið Árborg mun hafa skipulagsvald yfir samkvæmt gögnum af vef sveitarfélagsins.

Undanfarin ár hafa þrjár stórar hátíðir verið haldnar hvert sumar í garðinum, Kótilettan, 17. júní hátíð og svo Sumar á Selfossi. Ljóst er að ef skipulagsbreytingin nær fram að ganga verður erfitt að halda þær hátíðir með sama hætti og verið hefur vegna plássleysis í garðinum í ört stækkandi sveitarfélagi.

Uppi hafa verið hugmyndir á meðal íbúa sveitarfélagsins að í Sigtúnsgarði verði þegar fram líða stundir fallegur garður, uppbyggður með afþreyingu fyrir almenning og almennt fallegt og gróið umhverfi. Þessi markmið geta vel farið saman með einhverri uppbyggingu á miðbæjarsvæðinu en sú breyting sem nú er auglýst tekur yfir um helming þess svæðis sem við höfum hingað til talið til Sigtúnsgarðs. Þetta teljum við undirrituð óásættanlegt og höfum því hafið undirskriftarsöfnun gegn deiliskipulagsbreytingunni.

Mynd tekin úr gögnum auglýsts deiliskipulags. Rauðar brotalínur afmarka byggingalóðir. Frekari gögn má nálgast á vef sveitarfélagsins Árborgar, www.arborg.is.

Á meðfylgjandi myndum má sjá hversu stór hluti garðsins mun falla sveitarfélaginu úr greipum til skipulagningar á framtíðargarði. Við undirrituð skorum á íbúa Árborgar að kynna sér þær breytingar sem gætu orðið að veruleika og taka upplýsta afstöðu til þeirra. Undirskriftarsöfnunin gegn breytingu á deiliskipulaginu fer fram á netinu og er slóðin á hana (https://www.ipetitions.com/petition/sigtunsgardur)

Kæru íbúar, tíminn er naumur þar sem að skila þarf inn athugasemdum við skipulagsbreytingunum fyrir 29. ágúst.

Tökum höndum saman og verndum Sigtúnsgarðinn.

Frekari upplýsingar má finna á (https://www.facebook.com/sigtunsgardur/)

Grein þessi er unnin eftir bestu vitund höfunda út frá þeim gögnum sem eru aðgengileg á vef sveitarfélagsins Árborg.

Hólmfríður Einarsdóttir,
Davíð Kristjánsson,
Axel Sigurðsson,
Magnús Ragnar Magnússon,
Klara Öfjörð,
Steindór Guðmundsson,
Björk Reynisdóttir,
Sigurður Magnússon,
Gísli Ragnar Kristjánsson
og stuðningsmenn.

Nýjar fréttir