8.9 C
Selfoss

Líkfundur í Hvítá

Vinsælast

Í leitarflugi Landhelgisgæslu með björgunarsveitarmönnum Eyvindar á Flúðum í dag fannst lík af karlmanni á austurbakka Hvítár, neðan Brúarhlaða. Líkið hefur verið flutt til rannsóknar á Rannsóknarstofu Háskólans í réttarmeinafræði þar sem fram fer krufning á því ásamt því að Kennslanefnd ríkislögreglustjóra mun vinna með réttarmeinafræðingi að því að bera kennsl á það. Sterkar líkur eru á því að líkið sé af Nika Begadze sem féll í Hvítá við Gullfoss fyrr í sumar.

Nýjar fréttir