2.3 C
Selfoss

Banaslys við Reynisfjöru í Mýrdal

Vinsælast

Erlendur ferðamaður lést við Reynisfjöru í Mýrdal þegar hann féll til jarðar með svifvæng sem hann flaug þar um kl. 18:43 í kvöld. Lífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn á staðnum.

Rannsókn málsins er í höndum lögreglunnar á Suðurlandi en ekki er unnt að gefa frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Þetta kemur fram á vefsíðu lögreglunnar.

Nýjar fréttir