7.3 C
Selfoss

Auglýst eftir dósatínara á Flúðum um verslunarmannahelgina

Vinsælast

Á heimasíðu Hrunamannarepps var nýlega auglýst eftir áhugasömum aðila til að tína rusl og dósir á Flúðum um verslunarmannahelgina. Í auglýsingunni segir að verkið feli í sér að tína rusl og dósir á Flúðum fjóra morgna frá föstudegi að telja. Miðað er við að búið sé að hreinsa svæðið fyrir kl. 8:00 á morgnana. Sem endurgjald fyrir verkið greiðir Hrunamannahreppur 100.000 krónur auk þess sem viðkomandi eignast allar skilagjaldsskildar umbúðir sem hann getur safnað saman. Einnig kemur fram að Hrunamannahreppur geti jafnframt aðstoðað við að útvega verkfæri vegna verksins.

Nú er spurning hvort einhverjir sjái sér ekki leik á borði og tíni inn ágætis tekjur um helgina.

Nýjar fréttir