2.8 C
Selfoss

Leikið á Selfossi og í Þorlákshöfn á Norðurlandamóti U17

Vinsælast

Norðurlandamót U17 drengja verður haldið á Íslandi dagana 30. júlí til 5. ágúst. Átta lið taka þátt í mótinu. Annar riðillinn verður leikinn á Selfossi og í Þorlákshöfn. Í honum eru Danmörk, Færeyjar, Svíþjóð og Finnland. Hinn riðillinn verður leikinn á Suðurnesjum. Í þeim riðli eru Ísland, Noregur, Pálland og Norður Írland.

Það verður fullt af flottum leikjum á Suðurlandinu þessa daga og því er fólk hvatt til að mæta á völlinn og sjá leikmenn framtíðarinnar. Frítt er á alla leiki.

Fjórir leikir verða á Selfossi:
Sunnudaginn 30. júlí: Danmörk – Færeyjar kl. 12:00 og Svíþjóð – Finnland kl. 16:00.
Fimmtudaginn 3. ágúst: Finnland – Danmörk kl. 12:00 og Svíþjóð – Færeyjar kl. 16:00.

Tveir leikir verða í Þorlákshöfn:
Þriðjudaginn 1. ágúst: Færeyjar – Finnland kl. 12:00 og Danmörk – Svíþjóð kl. 16:00.

Sunnudaginn 30. júlí verða tveir leikir í Sandgerði:
Pólland – Noregur kl. 12:00 og Ísland – Norður Írland kl. 16:00.

Þriðjudaginn 1. ágúst verða tveir leikir í Vogum:
Pólland – Norður Írland kl. 12:00 og Ísland – Noregur kl. 16:00.

Fimmtudaginn 3. ágúst verða tveir leikir í Garðinum:
Norður Írland – Noregur kl. 12:00 og Ísland – Pólland 16:00.

Nýjar fréttir