3.4 C
Selfoss

Banaslys við flúðasiglingar á Hvítá

Vinsælast

Skömmu eftir hádegi í dag barst lögreglu tilkynning um að slys hefði orðið við flúðasiglingar á Hvítá, skammt neðan við Brúarhlöð. Reyndist þar erlendur karlmaður á áttræðisaldri hafa fallið útbyrðis. Samferðamenn mannsins náðum honum fljótlega um borð aftur en hann var þá orðinn meðvitundarlaus. Endurlífgunartilraunir báru ekki árangur. Þetta kemur fram á facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.

Lögreglan á Suðurlandi vinnur að rannsókn málsins. Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Nýjar fréttir