8.4 C
Selfoss
Home Fréttir Mugison í Hvíta húsinu á miðvikudaginn

Mugison í Hvíta húsinu á miðvikudaginn

0
Mugison í Hvíta húsinu á miðvikudaginn
Mugison.

Mugison verður með tónleika í Hvítahúsinu miðvikudagskvöldið 24. maí næstkomandi. Tónleikarnir eru partur af tónleikaröð sem Mugison er með, en hún samanstendur af 9 tónleikum víðs vegar um landið. Mugison og hljómsveit spiluðu á alltof fáum tónleikum þegar þau fylgdu eftir síðustu plötu kappans, Enjoy, fyrir síðustu jól. Var það mál manna og kvenna að hljómsveitin hafi aldrei hljómað betur. Rósa Sveinsdóttir bættist í hópinn í fyrra og spilar á saxafón. Þá hafa þau Tobbi og Rósa tekið upp á því að radda eins og englakór í fallegu lögunum – og Addi og Guðni halda ballestinni eins og sannir skriðdrekar. Mugison er þekktur fyrir kraftmikla og einlæga sviðsframkomu – allt er lagt í sölurnar á hverjum einustu tónleikum. Þetta er einstakt tækifæri til þess að upplifa tónlist sem spannar allan tilfinningaskalann. Miðasala á Tix.is.