-0.5 C
Selfoss

Sauðfé tekið úr vörslu eiganda á Suðurlandi

Vinsælast

Í lok síðustu viku svipti Matvælastofnun umráðamanni sauðfjár á Suðurlandi öllum kindum sínum. Ástæða vörslusviptingar er sinnuleysi án þess að kröfur stofnunarinnar væru virtar. Í lögum um velferð dýra segir að umráðamönnum dýra beri að tryggja dýrum góða umönnun, þ.m.t. að sjá til þess að þörfum dýranna sé sinnt að jafnaði einu sinni á dag.

Búið er að fá aðila til að annast dýrin fram yfir sauðburð. Matvælastofnun er heimilt að krefja umráðamann/eiganda dýra um kostnað af þvingunaraðgerðum. Um er að ræða á annan tug áa og verða þær áfram á staðnum í umönnun umsjónarmanns. Ástand dýranna er viðunandi í dag og gefur ekki tilefni til frekari aðgerða að svo stöddu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Nýjar fréttir