1.7 C
Selfoss

Eftirminnileg Spánarferð spænskunema

Vinsælast

Í byrjun mars sl. lögðu átta spænskunemendur úr Fjölbrautaskóla Suðurlands af stað til Barcelona til þess að svala þorsta sínum í spænska menningu. Tveir farastjórar fylgdu þessum nemendum. Eins og öllum flugum á Íslandi var fluginu okkar seinkað. Það var þó ekki í nema einn og hálfan tíma, en nóg til þess að meirihluti hópsins náði að sofna fyrir flug.

Þegar komið var til Barcelona var brunað upp á hostelið og tékkað sig inn. Hluti nemendanna fór á hinn sögufræga fótboltaleik Barcelona og Parísar sem endaði með 7 mörkum (6-1 fyrir Barcelona). Á meðan leiknum stóð fór hluti hópsins ásamt fararstjórum og snæddi ljúfengan spænskan kvöldverð.

Á meðan ferðinni stóð var skoðaður fjöldinn allur af stöðum vítt og breitt um borgina og við hvern stað áttu nemendurnir að flytja stutta kynningu um staðinn á spænsku. Staðir sem er vert að nefna eru m.a.: La Sagrada Familia, Casa Batlló, Park Güell, Sant Pau.

Hópurinn skellti sér á meiriháttar flamenco-sýningu sem heillaði nemendur upp úr skónum. Einnig var smakkað Pinxos, sem eru tapasréttir frá Baskalandi auk hinna venjulegu Tapas rétta. Reynt var á spænskukunnáttu nemenda í ratleik sem fararstjórar héldu fyrir nemendur á La Rambla, sem er aðalgata Barcelonaborgar.

Gistiheimili nemenda var á hliðargötu La Rambla, svo nemendur voru nokkuð miðsvæðis í borginni. Ferðast var á milli staða með strætisvagni, neðanjarðarlest eða fótgangandi. Samtals voru gengnir rúmir 550 kílómetrar eða 60 á mann yfir alla ferðina.

Á mánudeginum átti Eva kennari nemenda afmæli og var haldið upp á það með indverskum mat. Nemendur lögðu saman í púkk og gáfu Evu litla fallega gjöf til minningar um ferðina.

Í frítímanum gat hver og einn upplifað borgina á sinn hátt, hvort sem það var með því að versla sér föt, eða sitja á kaffihúsi og upplifa menninguna. Sá hlutur sem nemendur kyntust best, var Siesta menning Spánverja og telja að það eigi að taka hana upp hið snarasta á Íslandi. Nemendur ferðarinnar kynntust hvor öðrum betur og varð undir lokinn orðinn góður og vel þéttur hópur. Yfir allt hafði ferðin heppnast vel og snéru allir mjög sáttir heim. Við viljum þakka öllum þeim sem komu að því að styrkja okkur kærlega fyrir.

Fyrir hönd nemenda SPÆN2DD05,
Jakob Burgel og Katrín Stefánssdóttir.

Random Image

Nýjar fréttir