1.1 C
Selfoss
Home Fréttir Sunnlenskir kvikmyndadagar í Selfossbíói

Sunnlenskir kvikmyndadagar í Selfossbíói

0
Sunnlenskir kvikmyndadagar í Selfossbíói

Sunnlenskir kvikmyndadagar verða haldnir í Selfossbíói dagana 20.–23. apríl í tengslum við Vor í Árborg. Tilgangurinn með þessum dögum er að kynna og gefa fólki kost á því að sjá fáséðar myndir í kvikmyndahúsi, sem allar eiga það sameiginlegt að hafa tengingu við Suðurland. Verkefnastjóri kvikmyndadaga er Gunnar Sigurgeirsson og er þetta þriðja árið sem þessir dagar eru haldnir í samstarfi við SASS, Selfossbíó og Sveitarfélagið Árborg.

Fyrsta sýningin verður í dag á Sumardaginn fyrsta þegar mynd Páls Seingrímssonar, Undur vatnsins, birtist á hvíta tjaldinu. Síðan verða Vestmannaeyjar og Ginklofin í forgrunni og þá hugvit í Villingaholtshreppi, fjárleitir á Gnúpverjaafrétti, fjallamenska á Fimmvörðuhálsi og rafmagnssmíði í Skaftafellssýslu. Á lokadeginum verður meistari Þór Vigfússon á sagnaslóðum Flóans og síðan líkur þessum kvikmyndadögum í Veiðivötnum.

Framleiðendur og kvikmyndagerðarmenn gáfu góðfúslegt leyfi til sýninga á myndunum og eiga þeir þakkir skyldar fyrir sitt framlag. Áhugasamir sýningagestir eru hvattir til að tryggja sér miða tímalega í afgreiðslu Selfossbíós því aðeins eru 50 sæti í boði á hverja sýningu og frítt inn.

Dagskrá kvikmyndadaga í Selfossbíói:

Fimmtudagur 20. apríl, sumardagurinn fyrsti:
15:00 Undur vatnsins. Heimildamynd – Páll Steingrímsson.
16:00 Ginklofinn. Barnasjúkdómur í Vestmannaeyjum og á Sankti Kilda. Heimildamynd – Páll Steingrímsson.
17:00 Hugvit og hagleikur. Frumkvöðlar og hugvitsmenn í Villigaholtshreppi. Heimildamynd – Þórbergur Hrafn Ólafsson.
18:00 Upp undir jökli. Fjárleitir á Gnúpverjaafrétti. Heimildamynd – Steinþór Birgisson

Föstudagur 21. apríl:
17:00 Undur vatnsins.
18:00 Fjallmenn á Fimmvörðuhálsi. Fjallagarpar og Guðmundur frá Miðdal. Heimildamynd – Ari Trausti Guðmundsson og Hjálmtýr Heiðdal.
18:30 Það kom svolítið rafmagn. Skaftfellski rafmagnssmiðurinn Bjarni Runólfsson í Hólmi. Heimildamynd – Hjálmtýr Heiðdal og Finnbogi Hermannsson.

Laugadagur 22. apríl:
16:00 Upp undir jökli. Fjárleitir á Gnúpverjaafrétti.
17:00 Hugvit og hagleikur. Frumkvöðlar og hugvitsmenn í Villigaholtshreppi.
18:00 Fjallmenn á Fimmvörðuhálsi. Fjallagarpar og Guðmundur frá Miðdal.
18:30 Það kom svolítið rafmagn. Skaftfellski rafmagnssmiðurinn Bjarni Runólfsson í Hólmi.

Sunnudagur 23. apríl:
15:00 Ginklofinn. Barnasjúkdómur í Vestmannaeyjum og á Sankti Kilda.
16:00 Hér sé Guð og góðir vættir. Söguslóðir Þórs Vigfússonar. Heimildamynd – Gunnar Sigurgeirsson.
17:00 Vatnalíf. Sögu- og veiðislóðir Veiðivatna. Heimildamynd – Gunnar Sigurgeirsson.