-0.9 C
Selfoss

Ungmennaþing í Rangárþingi ytra

Vinsælast

Ungmennaráð Rangárþings ytra hélt ungmennaþing í fyrsta skipti í menningarsalnum á Hellu á dögunum. Ungmennaþingið var haldið til þess að gefa ungu fólki tækifæri til þess að koma á framfæri skoðunum sínum er varða málefni sveitarfélagsins.

Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri Rangárþings ytra setti þetta fyrsta Ungmennaþing. Ungmennaráð Árborgar kynnti síðan sína starfsemi ásamt þeim árangri sem þau hafa náð. Einnig kom Edda Björgvinsdóttir og fjallaði um jákvæðni og húmor. Þinggestum var síðan skipt niður í umræðuhópa þar sem miklar umræður áttu sér stað.

Næsta skref hjá Ungmennaráði er að vinna úr öllum þeim hugmyndum sem fram komu og fara með þær á fund sveitarstjórnar. Ungmenni eru ekki bara framtíðin heldur eru ungmenni til í dag m.a. fyrir ungmenni framtíðarinnar. Öll mál skipta ungmenni máli og ungmenni eiga að fá að hafa skoðun á öllum málum.

Random Image

Nýjar fréttir