-1.6 C
Selfoss

Nemendur ML draga skólameistara sinn í hestvagni um uppsveitirnar

Vinsælast

Í dag fimmtudaginn 6. apríl ætla nemendur á útskriftarári í Menntaskólanum að Laugarvatni að standa fyrir fjáröflun fyrir útskriftaferð sína til Thailands. Um er að ræða afar skemmtilegt og óhefðbundið áheitahlaup en nemendur leituðu sér aðstoðar til skólameistara síns, Halldórs Páls Halldórssonar við verkefnið. Markmið þeirra er að draga Halldór Pál skólameistara í Sulky hestvagni Uppsveitahringinn.

Lagt verður af stað um kl. 09:00 í dag frá skólanum og áætlaður tími til baka er kl. 19:00 en leiðin er um 64 km. Alls verða 28 nemendur sem taka þátt en 2–4 nemendur hlaupa í einu. Pálmi Hilmarsson húsbóndi féllst á að keyra rútu með þreyttum og sveittum menntskælingum en með í för verður einnig björgunarsveitabíll.

Nemendur þakka öllum sem tóku þátt í undirbúningi og skora á ML-inga, unga sem aldna, að styrkja þetta skemmtilega verkefni. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á Facebook viðburðinum Uppsveitadráttur Skólameistara.

Uppfært:

Hér má sjá myndir úr ferðinni:

https://www.flickr.com/photos/144137759@N04/33830265096/in/album-72157679009454103/

Nýjar fréttir