5.6 C
Selfoss

Selfyssingar leika til undanúrslita í Höllinni á morgun

Vinsælast

Í fyrsta sinn í handboltasögu Selfoss er meistaraflokkur kvenna í undanúrslitum í Coca Cola bikarkeppni HSÍ eða „Final Four úrslitahelginni“ sem fram fer í Laugardalshöllinni.
Stelpurnar í liði Selfoss spila við Stjörnuna á morgun fimmtudag og hefst leikurinn kl. 17:15.

Í samstarfi við Guðmund Tyrfingsson verður boðið upp á sætaferðir á leikinn og er brottför frá íþróttahúsi Vallaskóla kl. 16:00. Forsala miða er í Tíbrá, félagsheimili Umf. Selfoss, að Engjavegi 50, og í verslun Baldvins og Þorvaldar, að Austurvegi 56. Mikilvægt er að Selfyssingar kaupi miða á þessum stöðum því þá rennur allur ágóði beint til handknattleiksdeildar Selfoss. Miðaverð er kr. 2.000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn.
Úrslitaleikur Coca Cola bikarsins fer fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 25. febrúar.
Eru Selfyssingar og Sunnlendingar allir hvattir til að fjölmenna í Höllina og styðja stelpurnar til sigurs. Áfram Selfoss!

Nýjar fréttir