6.1 C
Selfoss

Bílvelta milli Hveragerðis og Selfoss

Vinsælast

Tækjabíll Brunavarna Árnessýslu frá Hveragerði var kallaður út rétt fyrir klukkan níu í morgun vegna bílveltu milli Hveragerðis og Selfoss. Afleit færð var á Suðurlandsvegi á þessum tíma, krapi og talsverð ofankoma. Slysið atvikaðist með þeim hætti að ökumaður missti stjórn á bifreiðinni vegna krapa á veginum og endaði hann utan vegar á toppnum ofan í skurði. Tveir menn voru í bílnum og komust þeir ekki út af sjálfsdáðum vegna legu bifreiðarinnar í skurðinum. Það vildi þeim til happs að ekki var mikið vatn í skurðinum á þessum stað en engu að síður voru þeir blautir og kaldir.Þetta kemur fram á faxebook-síðu BÁ.

þar segir einnig að greiðlega hafi gengiðað ná mönnunum út eftir að slökkvilið, lögregla og sjúkraflutningsmenn komu á vettvang. Ökumaður og farþegi voru síðan fluttir með sjúkrabílum HSU á sjúkrahús til nánari skoðunar en ekki er talið að þeir hafi hlotið alvarleg meiðsl.

Nýjar fréttir