1.7 C
Selfoss

Stefnt að byggingu 24 lítilla raðhúsa

Vinsælast

Rangárþing eystra og Sláturfélag Suðurlands skrifuðu undir yfirlýsingu í gær fimmtudaginn 26. Janúar þar sem stefnt er að byggingu 24 lítilla raðhúsa til útleigu til starfsfólks SS. Í yfirlýsingunni segir:

„Árið 1991 flutti SS kjötiðnað sinn frá Reykjavík til Hvolsvallar og með honum um 130 ársverk. Umfang starfseminnar hefur aukist síðan þá og í dag eru um 160 ársverk á vegum SS í Rangárþingi eystra. Húsnæði kjötiðnaðarins telur um 9000 fermetra.

Unnið er að stækkun kjötvinnslunnar og búið að hanna 1300 fermetra stækkun sem mun auka afköst við framleiðsluna og gera nýjungar í framleiðslu mögulegar. Jafnframt er stefnt að fullu útflutningsleyfi til Bandaríkjanna en mikil áhugi er á kaupum hinnar einu sönnu SS pylsu þar í landi.

Allt frá upphafi hefur Rangárþing eystra stutt uppbyggingu SS á svæðinu dyggilega. Miklir og gagnkvæmir hagsmunir eru í atvinnustarfsemi SS og viðgangi sveitarfélagsins.

Þensla er á húsnæðismarkaði og gildir það um Hvolsvöll eins og mörg önnur landsvæði. Það eru hagmunir SS að geta tryggt starfsfólki sem þess óskar aðgang að vönduðu leiguhúsnæði til langs tíma.

Í samvinnu við Rangárþing eystra er stefnt að byggingu 24 lítilla raðhúsa til útleigu til starfsfólks SS. Rangárþing eystra sér til þess að til séu á skipulagi lóðir en SS byggir og á húsnæðið. Ekki er vitað til þess að önnur fyrirtæki hafi með sambærilegum hætti aðstoðað starfsfólk með því að leggja til vandað húsnæði til langtíma leigu.

SS fagnar 110 ára afmæli laugardaginn 28. janúar næstkomandi og gaman að geta sagt frá þessari fyrirhuguðu uppbyggingu verksmiðju og íbúðarhúsnæðis á þessum tímamótum.“

Nýjar fréttir