0.5 C
Selfoss

Guðrún Hafsteinsdóttir hlaut FKA viðurkenninguna 2017

Vinsælast

Það ríkti sannkölluð hátíðarstemning í Silfurbergi í Hörpu í gær þegar FKA afhenti sínar árlegu viðurkenningar að viðstöddum fjölda karla og kvenna úr framlínu íslensks viðskipta- og atvinnulífs. Lóa Þórhallsdóttir, formaður félagsins ávarpaði gesti og bauð þá velkomna en að því búnu afhenti Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir þremur konum úr atvinnulífinu viðurkenningar félagsins.

FKA viðurkenninguna 2017 hlaut Guðrún Hafsteinsdóttir, einn eiganda og markaðsstjóri Kjöríss, formaður Samtaka iðnaðarins, varaformaður Samtaka atvinnulífsins.

Hvatningarviðurkenningu FKA hlaut Dr. Hólmfríður Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri Iceprotein ehf og Protis ehf.

Þakkarviðurkenningu FKA 2017 hlaut Hafdís Árnadóttir, stofnandi og eigandi Kramhússins.

Guðrún Hafsteinsdóttir lauk námi í mann- og kynjafræði frá Háskóla Íslands, er mikill jafnréttissinni og hefur verið óþreytandi við að hvetja konur til að láta til sín taka á sem flestum sviðum þjóðlífsins. Sjálf hefur hún verið óhrædd við að stökkva út í djúpu laugina og taka að sér ábyrgðarmikil og krefjandi verkefni. Þann kjark þakkar hún ekki síst foreldrum sínum.

„Þau höfðu óbilandi trú á okkur systkinunum og ég man ekki eftir að kyn hafi nokkurn tíma verið fyrirstaða í þeirra huga. Þau hafa verið okkur öllum ómetanlegar fyrirmyndir“ segir hún.

Guðrún hefur langa og víðtæka reynslu af atvinnurekstri. Ekki aðeins hefur hún setið í stjórn fjölskyldufyrirtækisins Kjörís frá unga aldri heldur tók hún við starfi framkvæmdastjóra félagsins aðeins 23 ára að aldri eftir fráfall föður síns og gegndi því í nokkur ár. Hún var síðar búsett í Þýskalandi í fimm ár en sneri aftur heim árið 2003, full af uppsafnaðri orku og athafnaþrá. Guðrún var fyrst kjörin formaður Samtaka iðnaðarins á Iðnþingi 2014 – og hefur verið endurkjörin tvisvar eftir það. Árið 2015 var hún kjörin varaformaður Samtaka atvinnulífsins og 2016 tók hún við stjórnarformennsku í Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Auk þess starfar hún sem markaðsstjóri Kjöríss.

Í rökstuðningi dómnefndar segir að Guðrún Hafsteinsdóttir hafi verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning og fyrirmynd bæði á sviði atvinnureksturs og með framlagi sínu í Samtökum Iðnaðarins, og Samtökum atvinnulífsins.

Random Image

Nýjar fréttir