7.3 C
Selfoss

Flugrútan ekur líka um Suðurland

Vinsælast

Kynnisferðir hafa aukið þjónustu við við­skiptavini sína og ferðaþjónustu á Suð­ur­landi, en í október hóf fyrirtækið akstur frá Keflavíkurflugvelli á Suðurland með við­komu á BSÍ.

Flugrútan Suðurland stoppar nú við Hótel Örk í Hveragerði, Hótel Selfoss á Selfossi, Stracta Hótel á Hellu og við Hótel Hvolsvöll á Hvolsvelli. Flugrútan Suðurland ekur svo frá Suðurlandi beint á Kefla­víkur­flugvöll án viðkomu á BSÍ.

Þessi nýja þjónusta mun tengja hótel og gististaði á Suðurlandi beint við Keflavíkur­flugvöll kvölds og morgna og býður upp á aukin tæki­færi fyrir ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi.-ög

Nýjar fréttir