7.8 C
Selfoss

Sjónarmið HSU vegna heilsugæslu í Rangárþingi

Vinsælast

Forstjóri Heilsugæslu Suðurlands, Herdís Gunnarsdóttir, birti í gær á heimasíðu stofnunarinnar sjónarmið HSU vegna heilsugæslumála í Rangárþingi. Þar segir:

Í fréttamiðlinum Sunnlenska birtist þann 16. janúar frétt af ályktun sveitarstjórnar Rangárþings eystra varðandi heilsu­gæslu í Rangárþingi. Í henni sagði m.a.:

„Sveitarstjórn Rangárþings eystra lýsir yfir áhyggjum sínum varðandi Heilsugæslu í Rangárþingi. Nú er ljóst að læknir með áratugareynslu og sérmenntun í heimilislækningum hefur sagt starfi sínu lausu við Heilsugæslu Rangárþings, en hann var í 75% starfshlutfalli sem ekki fékkst aukið.  Það er áhyggjuefni þar sem erfitt gæti reynst að fá lækni til starfa í ekki hærra starfshlutfall, þar sem erfiðlega hefur gengið að manna stöður heimilislækna á landsbyggðinni eins og forstöðumenn HSU hafa m.a. upplýst um.

Öflug heilsugæsla er hornsteinn í hverju samfélagi og mikilvægt að henni sé sinnt eins og lög gera ráð fyrir, enda á heilsugæsla að vera fyrsti viðkomustaður einstaklinga innan heilbrigðiskerfisins.  Sveitarstjórn Rangárþings eystra minnir einnig á ákvæði í sameiginlegri yfirlýsingu sveitarstjórna í Rangárþingi og forstjóra HSU frá 1. febrúar 2016 um mikilvægi samráðs og upplýsinga til sveitarstjórna á mönnun og þjónustu starfsstöðvanna og bætta kynningu á aðgengi íbúanna að þjónustunni.“

Af þessu tilefni vill stjórn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU) koma eftirfarandi sjónarmiðum á framfæri:

Stjórnendur HSU fréttu fyrst af ályktun sveitarstjórnarinnar í fjölmiðlum, ályktunin hefur ekki verið sent HSU. Hins vegar hafa sveitastjórnirnar þrjár í Rangárþingi óskað eftir fundi vegna eftirfylgni við samstarfsyfirlýsingu og verður fundurinn haldinn síðar í þessum mánuði.

Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU.
Herdís Gunnarsdóttir forstjóri HSU.

Það er ávallt verklag HSU þegar starfsmaður lætur af störfum að leitað sé allra leiða til að fylla í skarð viðkomandi. Framkvæmdastjóri lækninga á HSU og yfirlæknir heilsugæslunnar hafa frá því að þeir fengu uppsagnarbréfið í hendur lagt mikla vinnu í að tryggja fulla mönnun lækna í Rangárþingi eins og verið hefur hingað til. Full mönnun lækna við heilsugæsluna í Rangárþingi eru 2,75 stöðugildi miðað við íbúafjölda. Þar hefur verið full mönnun lækna og afar góð þjónusta sem er ekki ávalt reyndin á fámennari íbúasvæðum á landinu, eins og í Rangárþingi.

Það er að okkar mati fullkomlega eðlilegt að upp komi kvíði hjá fólki vegna óvissu um hvað taki við þegar læknar með langan starfsaldur láta af störfum. Við hjá HSU sýnum því fullan skilning, enda einkenna mikil persónuleg tengsl gjarnan samskipti í litlum samfélögum. Við viljum þó að skýrt komi fram að það er stefna HSU að halda áfram úti fullri þjónustu við íbúa Rangárþings þrátt fyrir eðlilegar mannabreytingar. Þess ber einnig að geta að biðtími eftir tíma hjá heilsugæslulækni í Rangárþingi er með því allra stysta sem þekkist á landinu og þar er veitt góð og samhæfð þjónusta þar sem allir sem þangað leita fá úrlausn með viðtali eða samtali samdægurs.

Fyrir liggur að nýr heilsugælsulæknir verði ráðinn til starfa. Fyrst um sinn verður ráðið í tímabundna afleysingu og það er þegar búið að tryggja þá mönnun frá þeim degi sem viðkomandi læknir lætur af störfum. Nánara skipulag eða auglýsing starfa er í hefðbundnum farvegi innan stofnunarinnar.

Selfossi 18. janúar 2017.
F.h. HSU, Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri

Nýjar fréttir