7.1 C
Selfoss
Home Fréttir Árborg mætir Grindavík í Útsvari á föstudaginn

Árborg mætir Grindavík í Útsvari á föstudaginn

0
Árborg mætir Grindavík í Útsvari á föstudaginn

Lið Árborgar mætir liði Grindavíkur í næstu umferð spurningaleiksins Útsvars á RÚV á föstudaginn kemur þ.e. 20. janúar kl. 20:00. Lið Árborgar skipa þau Herborg Pálsdóttir, Gísli Stefánsson og Gísli Þór Axelsson. Íbúar eru hvattir til að fjölmenna í sjónvarpssal og hvetja liðið áfram. Þeir sem hafa áhuga á að mæta í sjónvarpssal geta mætt upp í RÚV að Efstaleiti 1 í Reykjavík um kl. 19:30 á föstudag. Gengið er inn um aðalinngang og að Markúsartorgi.

Liði Árborgar gekk mjög vel í keppninni í fyrra. Þau komust í undanúrslit en töpuðu naumlega 72-71 fyrir Reykjavík.

Í ár er að sjálfsögðu stefnt á sigur en til þess þarf stuðning í salinn og því um að gera að skella sér í borgarferð á föstudaginn og upplifa þáttinn beint úr sjónvarpssal.