1.7 C
Selfoss
Home Fréttir Árborg skoraði hátt á afmælishátíð Erasmus+

Árborg skoraði hátt á afmælishátíð Erasmus+

0
Árborg skoraði hátt á afmælishátíð Erasmus+
Fulltrúar Árborgar sem mættu á hátíðina stilltu sér upp fyrir myndatöku.

Óhætt er að segja að að Árborg hafi skorað hátt á 30 ára afmælishátíð Erasmus+ sem haldin var í Hörpu miðvikudaginn 9. nóvember sl. Skólaþjónusta Árborgar fékk gæðaviðurkenningu fyrir verkefnið Nám, störf og lærdómssamfélag í flokknum leik-, grunn- og framhaldsskólastig.

Anna Ingadóttir, Páll Sveinsson og Þorsteinn Hjartarson tóku á móti viðurkenningunni fyrir hönd skóla og skólaþjónustu. Verkefni Árborgar var valið úr öllum verkefnum í þessum flokki sem hafa hlotið Erasmus+styrk síðastliðin þrjú ár.

Þá var ungmennaráð Árborgar tilnefnt í flokknum æskulýðsstarf fyrir verkefnið Ráðstefna ungmennaráða á Suðurlandi. Verkefni ungmennaráðs var eitt þriggja verkefna sem tilnefnd voru í þessum flokki úr fjölmörgum öðrum. Dómnefnd horfði til gæða, nýsköpunar, yfirfærslumöguleika, áhrifa til skemmri og lengri tíma og verkefnastjórnunar við val á verðlaunaverkefnunum.

Það er ánægjulegt að sjá þennan góða árangur Árborgar bæði í skólahluta Erasmus+ og æskulýðshluta.