Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri er meira en skóli. Hann er hjarta samfélagsins við ströndina, hann er mikilvægur þáttur í því að halda uppi lifandi byggð, öflugu félagslífi og framtíðarsýn fyrir fjölskyldur, skóli er almennt forsenda fyrir búsetu. Það skiptir máli fyrir þorpin okkar að þar sé sterkt skólastarf. Án þess veikist grunnur samfélagsins.
Skólinn er einn, en starfar á tveimur stöðum; yngra stig á Stokkseyri og eldra stig á Eyrarbakka. Það þýðir að á báðum stöðum þarf að vera húsnæði sem er varanlegt, vel búið og hannað með það að markmiði að styðja við öflugt og framsækið skólastarf til framtíðar.
Jafnræði innan eins sveitarfélags
Árborg er eitt sveitarfélag. Það er einföld staðreynd, en því miður er það ekki alltaf sýnilegt og vill það stundum verða þannig að íbúar við ströndina gleymast og upplifun okkar er stundum eins og við skiptum ekki máli. En staðreyndin er sú að Árborg er eitt sveitarfélag og sú staðreynd kallar á skýra skyldu bæjaryfirvalda: að öll börn njóti jafnræðis, óháð búsetu.
Börn við ströndina eiga ekki að standa höllum fæti miðað við börn á Selfossi þegar kemur að:
- aðstöðu til náms
- faglegum stuðningi
- íþrótta- og tómstundaaðstöðu
Ef einhver munur er á, þá er það verkefni sveitarfélagsins að leiðrétta hann en ekki réttlæta hann.
Sérstaða sem styrkur
Saga skólans er merkileg. Hann er elsti starfandi grunnskóli landsins og hefur gegnt lykilhlutverki í samfélaginu í yfir 170 ár. Sú saga skiptir máli, en hún má ekki verða afsökun fyrir því að fresta nauðsynlegum ákvörðunum. Það er ekki sjálfgefið að skóli starfi samfellt í yfir 170 ár. Það hefur aðeins tekist vegna þess að kynslóðir hafa lagt sitt af mörkum. Þess vegna er mikilvægt að hafa það í huga að við eigum ekki bara að varðveita skólann. Við eigum að efla hann.
Uppbygging – ekki bráðabirgðalausnir
Það er sérstaklega brýnt að horfa til uppbyggingar á Eyrarbakka. Í byrjun þessarar aldar voru áform um að byggja nýtt húsnæði bæði á Stokkseyri og Eyrarbakka, húsnæðið á Stokkseyri kom, en ekkert bólar á nýju húsnæði á Eyrarbakka. Ekki er hægt að líta til framtíðar með lausnum sem byggja á bráðabirgðahúsnæði til lengri tíma.
Ef við ætlum að taka menntun barna alvarlega, þá þarf:
- skýra stefnu um framtíðarhúsnæði
- fjárfestingu í varanlegum lausnum
- og vilja til að byggja upp aðstöðu sem stenst nútímakröfur
Sama á við um aðstöðu til íþrótta og heilsueflingar. Það er ekki aukaatriði, heldur er það mikilvægur hluti af heildstæðu námi barna.
Það þarf að bæta aðstöðu til íþróttakennslu við skólann og horfa sérstaklega til sundaðstöðu.
- Er aðstaða nemenda við ströndina sambærileg við það sem þekkist annars staðar í sveitarfélaginu?
- Hvernig ætlum við að tryggja að öll börn fái jafnan aðgang að íþróttum og sundi sem hluta af sínu námi?
Þetta eru spurningar sem ekki er hægt að víkja sér undan.
Spurningar til þeirra flokka sem bjóða fram í kosningunum 16.maí
Nú þegar kosningar nálgast er eðlilegt að kalla eftir skýrum svörum:
- Hvernig ætlið þið að tryggja raunverulegt jafnræði barna í Árborg?
- Hver er ykkar framtíðarsýn fyrir Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri?
- Ætlið þið að ráðast í varanlega uppbyggingu, eða er markmiðið halda áfram með bráðabirgðalausnir?
- Hvernig hyggist þið efla íþrótta- og sundaðstöðu fyrir nemendur við ströndina?
Þetta snýst ekki aðeins um byggingar eða skipulag. Þetta snýst um framtíð barna í sveitarfélaginu og um það hvort við viljum vera samfélag sem setur menntun í forgang.
Framtíðin mótast nú
Menntun barna er eitt mikilvægasta verkefni sveitarfélagsins. Hún á að byggjast á fagmennsku, framsýni og jafnræði. Það er því eðlileg krafa íbúa að málefni Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri fái skýra umræðu og að framboðslistar setji fram raunhæf og ábyrg svör.
Það má ekki vera svo að búseta innan sveitarfélagsins hafi áhrif á þau tækifæri sem börn fá til náms og þroska. Slíkt samræmist hvorki markmiðum nútímans né þeim gildum sem við viljum standa fyrir.
Við verðum að gera þá kröfu að búseta innan sveitarfélagsins hafi ekki áhrif á tækifæri barna. Það er ekki aðeins sanngirnismál heldur er það er grundvallaratriði.
Með von um skýr svör og stefnu í þessum mikilvæga málaflokki
Sædís Ósk Harðardóttir
Íbúi á Eyrarbakka og foreldri barna við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri



