5.6 C
Selfoss

Léttum undir og lækkum kostnað

Vinsælast

Tíminn flýgur og kosningar nálgast. Við í Samfylkingu og óháðum í Árborg opnuðum kosningaskrifstofu okkar formlega á sumardaginn fyrsta og kynntum stefnuskrá okkar fyrir kosningarnar 16. maí. Hér á eftir verður stiklað á stóru um helstu baráttumál okkar.

Árborg alla ævi

Meginmarkmiðið er að Árborg sé öflugt samfélag þar sem íbúar hafa jöfn tækifæri, þjónustan sé góð og hérna sé gott að búa ævina alla. Til þess að ungt fólk vilji setjast hér að og ala upp börn eða koma aftur heim eftir nám og stofna hérna fólskyldu þurfum við að vera samkeppnishæf við önnur sveitarfélög. Þess vegna er mikilvægt að létta undir með barnafólki og lækka kostnað þeirra. Þetta gerum við með því að lækka leikskólagjöld í skrefum yfir kjörtímabilið, setja þak á leikskólagjöld og taka upp 100% systkinaafslátt.

Þjóðarátak í umönnun eldra fólks

Samfylkingin boðar þjóðarátak í umönnun eldra fólks og uppbyggingu yfir 1.500 hjúkrunarrýma á landinu öllu. Við þurfum að halda áfram að fjölga hér hjúkrunarrýmum í samstarfi við ríkið og vera tilbúin með lóðir þegar til þess kemur. Einnig þarf að fjölga dagdvalarrýmum. Við erum með góða þjónustu í Vinaminni og Árblik en biðlistarnir eru of langir. Þá er það velferðatæknin sem við teljum að geti bætt þjónustu til muna ásamt meiri samþættingu í þjónustu við eldra fólk þannig þau hafi einn stað til að leita á fyrir þá þjónustu sem þau þurfa.

Einfaldara regluverk

Til framtíðar þarf að auðvelda íbúum og fyrirtækjum rekstur og uppbyggingu í Árborg. Það blasir við að einfalda þarf regluverk og ferli leyfisumsókna, þannig að þeir sem eru í rekstri eða hyggjast hefja rekstur hafi einn tengilið eða vettvang fyrir sín erindi. Komum í veg fyrir að fólk þurfi að fara út um allan bæ með erindi sín og jafnframt passa upp á að leyfisveitingaraðilar komi í réttri röð og þetta sé margra mánaða ferli. Snúum dæminu við þannig að frumkvöðlum og fyrirtækjum sé treyst til að fara strax af stað og hefja rekstur, en veitum leiðsögn um úrbætur þegar eftirlit leiðir í ljós að þörf er á. En til þess að allt haldist í hendur þurfa að vera hvatar fyrir fyrirtæki og stofnanir að hefja starfsemi í Árborg. Tryggja þarf nægt lóðaframboð fyrir atvinnustarfsemi víðsvegar um sveitarfélagið ásamt því að sveitarfélagið sé raunverulega samkeppnishæft þegar kemur að álögum á fyrirtæki.

Hér að ofan hef ég nefnt fáein atriði úr ítarlegri stefnuskrá Samfylkingarinnr og óháðra í Árborg. Hægt er að kynna sér stefnuskránna á www.xs.is/arborg eða á samfélagsmiðlum okkar. Við hvetjum einnig íbúa til þess að kíkja til okkar á kosningaskrifstofuna að Eyravegi 23 Selfossi og spjalla við okkur um stefnumálin eða hvaðeina sem fólki liggur á hjarta.

Brynjar Þór Elvarsson
3. sæti á lista Samfylkingar og óháðra í Árborg

Nýjar fréttir