7.8 C
Selfoss

Bragabátar með bestu franskarnar í Árborg

Vinsælast

Nýverið hefur frölluklúbbur Félagsmiðstöðvarinnar Zelsíuz staðið fyrir fröllu smakki í Árborg. Farið var á alla helstu staði Árborgar og smakkað lítinn skammt af frönskum. Gefið var einkunn fyrir eftirfarandi flokka; bragð, útlit og verð vs skammtur.

Alls tóku á bilinu sex til sjö þátttakendur þátt í hverri smökkun og var meðaleinkunn reiknuð út frá mati hópsins. Markmiðið var að finna bestu franskarnar á svæðinu – bæði hvað varðar gæði og verðmæti fyrir peninginn.

Niðurstöðurnar komu mörgum á óvart en það var staðurinn Bragabátar sem stóð uppi sem sigurvegari með hæstu heildareinkunn. Þar þóttu franskarnar bæði einstaklega bragðgóðar og vel kryddaðar, auk þess sem skammtastærð miðað við verð fékk mikið lof.

Í öðru sæti lenti Samúelsson með sterka frammistöðu í öllum flokkum, en Olís fylgdi fast á eftir og fékk sérstaklega hrós fyrir mikið magn og gott verð. Kaffi krús og Skalli kláruðu topp fimm listann og þóttu traustir kostir, þó þeir næðu ekki alveg toppsætunum.

Ekki voru þó allir staðir jafn heppnir. Sumir fengu gagnrýni fyrir ofeldaðar eða „slappar“ franskar, á meðan aðrir þóttu einfaldlega of dýrir miðað við magn.

Samkvæmt meðlimum klúbbsins var þetta þó fyrst og fremst gert í góðu gríni og til að finna nýja uppáhaldsstaði. Ljóst er að franskar eru ekki bara franskar heldur geta þær verið mikið sameiningartákn þar sem meðlimir klúbbsins voru virkilega áhugasamir og metnaðarfullir fyrir rannsókninni sem spannaði yfir 6 vikna tímabil.

Eins og áður kom fram stóðu Bragabátar uppi sem sigurvegarar og hljóta því titilinn bestu franskarnar í Árborg 2026 og óskum við þeim innilega til hamingju með þennan titil.

Hér má sjá einkunnagjöf á fimm efstu sætunum.

Bragabátar

Bragð: 4,5
Útlit: 4,1
Verð vs skammtur: 4,2
Meðaltal: 4,27

Samúelsson

Bragð: 4,2
Útlit: 3,6
Verð vs skammtur: 4,2
Meðaltal: 4,00

Olís

Bragð: 4,25
Útlit: 3,6
Verð vs skammtur: 4
Meðaltal: 3,95

Kaffi krús

Bragð: 4,2
Útlit: 4,3
Verð vs skammtur: 3,3
Meðaltal: 3,93

Skalli

Bragð: 3,85
Útlit: 3,7
Verð vs skammtur: 3,4
Meðaltal: 3,65

Nýjar fréttir