Sigríður Ásgeirsdóttir, betur þekkt sem Systa og Sesselja Jónsdóttir, betur þekkt sem Sessa hafa báðar frá unga aldri haft brennandi áhuga á list og sköpun. Áhugann á að túlka list sína með vatnslitum fengu þær þegar þær stunduðu nám í nokkur ár í Myndlistaskóla Kópavogs hjá listamanninum Derek Mundell. Auk hans handleiðslu hafa þær einnig sótt fjölda námskeiða hjá öðrum listamönnum, innlendum sem erlendum.
Listakonurnar verða með opnun á samsýningu „Samspil vatns og lita“ laugardaginn 6. júní næstkomandi milli kl. 14-17 í Gallery Listaseli.
Árið 2018 stofnuðu þær ásamt sjö öðrum konum vatnslitahópinn Flæði sem hefur hist reglulega síðan þá og málað saman. Eiga þær því sameiginlegan langan feril þar sem þær hafa málað saman, numið og miðlað reynslu innan Flæðishópsins.
Systa hefur haldið einkasýningu og báðar hafa þær tekið þátt í fjölda samsýninga. Meðal annars með öðrum listakonum úr Flæðishópnum og hjá Vatnslitafélagi Íslands sem þær eru báðar félagsmenn í.
„Samspil vatns og lita“ er fyrsta samsýning sem þær halda einungis tvær saman.

